
Frábærir tónlistarþættir með Ingó, einum vinsælasta tónlistamanni landsins; Brekkusöngsstjórinn sem á tvö af vinsælustu lögum ársins; Í kvöld er gigg og Takk fyrir mig – frábær lög sem fólk á öllum aldri er búið að syngja hástöfum með í allt sumar. Áhorfendur heima í stofu fá hér einstakt tækifæri til að læðast baksviðs og upplifa einstaka stemninguna þegar skemmtikraftar koma saman og telja í gleðina. Í hverjum þætti syngur Ingó sig í gegnum íslenska tónlistarsögu með skemmtilegasta fólki landsins og því ljóst að fjölskyldur landsins munu koma sér vel fyrir í sófanum heima og taka undir.